Guðmundur Andri lauk stúdentsprófi frá MS árið 1978 og BA-prófi í íslensku og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1983. Á árunum 1983-1985 stundaði hann nám til cand.mag.-prófs í íslenskum bókmenntum við HÍ.
Guðmundur Andri hefur starfað sem blaðamaður, gagnrýnandi, ritstjóri og þáttagerðarmaður. Hann er var ritstjóri bóka hjá Forlaginu og ritstýrði jafnframt Tímariti Máls og menningar. Hann er söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Spaða.
Fyrsta skáldsaga hans, Mín káta angist, kom út árið 1988 og síðan hefur hann sent frá sér nokkrar skáldsögur og hlotið fyrir þær ýmsar viðurkenningar. Meðal annars var hann tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Íslenska drauminn1991, Íslandsförina1996 og Sæmd 2013. Valeyrarvalsinn var lögð fram til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2012 og hefur verið þýdd á dönsku, norsku, frönsku og þýsku. Árið 2013 hlaut Guðmundur Andri verðlaun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins. Hann hefur einnig þýtt allmargar bækur, skrifað formála og annast ritstjórn ýmissa bóka. Árið 2008 hlaut hann barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur fyrir þýðingu sína á Bangsímon eftir A.A. Milne.