Týsfjóla (fræðiheiti: Viola canina) er fjölært blóm af fjóluætt.
Krónublöðin eru blá en hvít innst. Bikarblöðin eru odddregi, fræflarnir eru fimm talsins. Laufblöðin eru stilklöng, hárlaus og fíntennt. Týsfjólan kýs að vaxa í mó- og graslendi. Hún er algeng um allt Ísland.