Quine var stundum nefndur „heimspekingur meðal heimspekinga“. Hann tilheyrði þeirri hefð innan heimspekinnar sem nefnist rökgreiningarheimspeki, en hélt því þó einnig fram að heimspeki væri ekki hugtakagreining. Hann var Edgar Peirce prófessor í heimspeki við Harvard University frá árinu1956 til æviloka árið 2000. Quine er meðal áhrifamestu heimspekinga á síðari hluta 20. aldar og er meðal þekktustu heimspekinga í sögu bandarískrar heimspeki.
Æviágrip
Quine ólst upp í Akron í Ohio fylki í Bandaríkjunum. Hann hlaut B.A.-gráðu frá Oberlin College og doktorsgráðu frá Harvard árið 1932. Á Harvard nam hann rökfræði undir leiðsögn Alfreds North Whitehead. Að námi loknu ferðaðist Quine um Evrópu á rausnarlegum rannsóknarstyrk. Hann kynntist pólskum rökfræðingum og heimspekingum Vínarhringsins sem höfðu mikil áhrif á hann. Munaði þar mestu um áhrif Rudolfs Carnap.
Frá 1942 til 1946 starfaði Quine í leyniþjónustu bandaríska flotans.
Mathematical Logic (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1940, (2. útg.) 1951). ISBN 0-674-55451-5
Elementary Logic (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1941, (endursk. útg.) 1966). ISBN 0-674-24451-6
Methods of Logic (New York: Holt, 1950, (4. útg.) 1982). ISBN 0-674-57176-2
From a Logical Point of View: 9 Logico-Philosophical Essays (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1953, (endursk. 2. útg.) 1996). ISBN 0-674-32351-3