Forsetakjör 1952 á Íslandi fór fram þann 29. júní og var það fyrsta þar sem allt kosningabært fólk á Íslandi gat kosið sér forseta en Sveinn Björnsson fyrsti forseti Íslands var kjörinn af Alþingi á lýðveldishátíðinni á Þingvöllum árið 1944.
Þrír menn voru í framboði, þeir Ásgeir Ásgeirsson alþingismaður og fyrrverandi forsætisráðherra, sr. Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur og vígslubiskup og Gísli Sveinsson forseti sameinaðs Alþingis. Niðurstaðan varð sú að Ásgeir var kosinn forseti með 46,7% atkvæða.