Selma Björnsdóttir fæddist í Reykjavík þann 13. júní 1974, þriðja af fjórum börnum Björns Friðbjörnssonar og Aldísar Elíasdóttur.[1] Hún á þrjár systur, Hrafnhildi sem er óperusöngkona, Birnu og Guðfinnu sem eru báðar dansarar og danskennarar. Í barnæsku sinni fór Selma í danstíma ásamt systrum sínum hjá Heiðari Ástvaldssyni. „Ég hætti þar fljótlega af því að ég þurfti að dansa við stráka. Það gat ég ekki hugsað mér.“[2] Fimm ára gömul fór Selma að læra á selló sem hún æfði í þrjú ár. Frumraun hennar í leikhúsi kom þegar hún var aðeins sjö ára gömul en hún söng álfadísina í uppfærslu barnakórs Garðabæjar af Öskubusku. Þegar Selma var tíu ára fengu hún og systur hennar hlutverk í barnaóperunni Örkinni hans Nóa sem var sýnd í Íslensku óperunni og stuttu seinna komu þær fram í óperunni Carmen. Einnig fékk hún hlutverk í barnaleikritinu Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu. Árið 1990 hóf Selma nám við Verzlunarskóla Íslands og hafði hún mikinn metnað í námi sínu og mikinn áhuga á íslensku, bókmenntafræði og sögu. Hún var mjög virk í félagslífi skólans en hún tók ekki þátt í neinum söngleikjum fyrr en á lokaári sínu. Hún tók þátt í söngvakeppni skólans, Verzló Væli, fyrir tilviljun en vinkona hennar skráði hana til leiks án vitundar hennar. Þegar kom að keppninni fór hún með sigur af hólmi. Hún var danshöfundur í nemendamótssýningunni á söngleiknum Jesus Christ Superstar og það var við undirbúning sýningarinnar sem hún kynntist Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni sem hún síðar vann náið með.[3]
Ferill
1995–1998: Upphaf ferils
Árið 1995 eftir að hafa ústkrifast úr menntaskóla var Selma ráðin til að leika Rosaliu í uppfærslu Þjóðleikhússins af West Side Story. Hún hafði ætlað að fara í lögfræðinám en ákvað að taka sér ársfrí eftir skólann eftir að hún hafði fengið hlutverkið. Árið 1996 hóf sjónvarpsþátturinn Ó göngu sína á dagskrá RÚV í stjórn Selmu og Markúsar Þórs Andréssonar. Þættirnir voru miðaðir að unglingu og urðu frekar umdeildir en þeir samantóðu af umfjöllun um umræðuefni eins og klám og fíkniefni, frumsömdum atriðum, fréttum og allskonar menningarumfjöllun.[4] Árið 1998 var Selma ráðin í aðalkvenhlutverkið í söngleiknum „Grease” í Borgarleikhúsinu á móti Rúnari Frey Gíslasyni sem hún síðar giftist. Söngleikurinn naut gífurlegra vinsælda og var það þar sem Selma öðlaðist fyrst frama sem söng-og leikkona.
1999: Eurovision frægð og I Am
Í byrjun ársins 1999 var Selma beðin um að vera fulltrúi Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva vorið 1999.[5] Lagið átti hún að semja ásamt lagahöfundi að hennar eigin vali. Hún valdi Þorvald Bjarna en þau höfðu þá nýlegast unnið að tónlistinni í kvikmyndinni Sporlaust árið áður.[6] Eftir að hafa kynnt sér fyrri keppnir var Selma viss Selma valdi lagið „All Out of Luck“ úr hópi nítján laga sem Þorvaldur Bjarni hafði samið, en textinn var eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson. Þann 9. apríl 1999 var myndbandið við lagið í leikstjórn Óskars Jónassonar frumsýnt en það var tekið upp víða í Reykjavík.[7][8] Föruneyti Selmu innhélt Hönsu, Rúnu G. Stefánsdóttur og Stefán Hilmarsson í bakröddum, Brynjar Örn Þorleifsson og Daníel Traustason dansara og Þorvald Bjarna.[9] Selma hlaut töluverða athygli þegar hún kom til Jerúsalem fyrir keppnina og trónaði hún á toppi flestra veðbanka. Blaðamannafundur íslenska hópsins var sá fjölmennasti og þótti hún mjög sigurstrangleg í keppninni.[10] Lagið hafði þá náð toppi tónlistans á Íslandi sjö vikur í röð.[11] Selma náði öðru sæti í keppninni og hlaut 146 stig en þá var það þá besti árangur Íslands í keppninni. Kjóllinn sem Selma klæddist á sviðinu var síðar settur til sýnis á Hard Rock Café í Kringlunni.[12] Árangur Selmu í Eurovision var stökkpallur fyrir hana til að koma sér fyrir á erlendum vettvangi. Stuttu síðar skrifaði hún undir samning við Universal upp á þrjár plötur og hóf hún að syngja á fyrsu sólóplötu sína um leið. Platan bar nafnið I Am og í viðtali sagði Selma að hún væri „popplata en það eru nokkur rokklög og ballöður á henni líka.”[13] Selmu voru einnig veitt verðlaunin fyrir Flytjanda ársins á íslensku tónlistarverðlaununum 1999 eftir velgengni sína á árinu.[14]
2000–2004: Life Won't Wait og Sögur af Sviðinu
Aðeins ári eftir að fyrsta plata hennar, I Am kom út, gaf Selma út aðra plötu sína Life Won't Wait. Þrátt fyrir að platan hafi ekki náð að jafna velgengni I Am náði hún fjórða sæti á vinsældarlistanum. Stuttu eftir útgáfu Life Won't Wait ákváðu Selma og Þorvaldur að rifta samninginn við Universal eftir að hafa beðið í ár til að fá að koma fyrri plötunni út á heimsmarkað. Selma lýsti samt upplifun sinni á samningnum sem góðum, „ég söng úti um alla Evrópu og skemmti og söng hjá sjónvarpsstöðvum og á tónlistarhátíðum og gerði dýr og flott myndbönd. Þannig að ég lærði helling á þessu.“ Í desember 2001 höfðu Selma og Hansa haldið jólatónleika í Vesturporti og síðar Borgarleikhúsinu sem innihéldu eingöngu söngleikjatónlist og nutu mikillavinsælda. Viðbrögð voru svo góð að Skífan sýndi því áhuga að gefa út hljómplötu með söngleikjatónlist.[15] Eftir fæðingu sonar hennar í desember 2002 ákvað Selma að draga sig úr sviðsljósinu og vann þá helst við að aðstoða keppendur í Idol stjörnuleit með dansatriði.[16] Árið 2003 sneri hún svo aftur í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva þegar hún fylgdi Birgittu Haukdal til Ríga og sá um sviðshreyfingarnar á sviðinu. Íslenska lagið sem hét „Open Your Heart“ hafnaði í áttunda sæti með 81 stig og tryggði sá árangur að Ísland fengi að vera í aðalkeppninni árið eftir.[17]
Einkalíf
Selma kynntist Rúnari Frey Gíslasyni árið 1998 þegar þau léku á móti hvort öðru í söngleiknum Grease. Rúnar hafði áður verið skólabróðir hennar í Verzlunarskólanum en þau höfðu aldrei kynnst vegna þess hann var árinu eldri. Selma og Rúnar giftu sig í janúar 2006. Þau eiga tvö börn saman[18][19]