Nicolson fæddist á Jersey Shore Medical Center í Neptune, New Jersey. Móðir hans hét June Frances Nicholson (betur þekkt sem June Nilson) sem starfaði sem fatafella.[1] Þann 16. október1936, 6 mánuðum áður en Nicholson fæddist hafði June gifst Donald Furcillo í Elkton, Maryland.[2] Þó svo að Donald Furcillo hafi staðfest að hann sé faðir Nicholson heldur Patrick McGilligan því fram að raunverulegi faðir Nicholsons sé Eddie King, umboðsmaður June.[3] Nicholson hefur neitað að úr sér verði skoðað DNA-sýni til að athuga hver hans raunverulegi faðir sé.
Móðir June, Ethel, krafðist þess að taka Nicholson að sér í fóstur svo að June gæti einbeitt sér að starfsferli sínum.[3] Nicholson hélt að afi hans og amma, Ethel May Rhoads og John J. Nicholson, væru foreldrar hans. Nicholson komst að því að svo var ekki árið 1974, þegar hann var 37 ára gamall. Blaðamaður frá „Time Magazine“ komst að þessu við skrif á grein um líf Nicholsons. Þá höfðu bæði móðir hans og amma látist, en þær voru þær einu sem vissu hver raunverulegi faðir hans var.[4]
Nicholson ólst upp kaþólskur,[5] en í viðtali við Vanity Fair árið 1992 sagðist hann ekki trúa á Guð enn.[6]
Upphaf leiklistarferils
Þegar Nicholson flutti til Hollywood var honum boðið starf hjá teiknimyndarisanum Hanna-Barbera, en hann neitaði. Hann vildi heldur verða leikari.[7]
Samkvæmt tímaritinu Maxim hefur Nicholson sofið hjá yfir 2.000 kvenmönnum[8] Hann á 5 börn með 4 mismunandi konum en hefur aðeins verið giftur einu sinni.[9]
Lengsta sambandið hans spannaði yfir 17 ára tímabil, en það var með leikkonunni Anjelica Huston, dóttir kvikmyndaleikstjórans John Huston. Sambandinu lauk þegar Anjelicu bárust fréttir af því að Rebecca Broussard væri ólétt eftir Jack.
Nicholson hefur verið tilnefndur fyrir leik (aðal- eða aukahlutverk) á fimm mismunandi áratugum: 7. áratug 20. aldar, 8. áratug 20. aldar, 9. áratug 20. aldar, 10. áratug 20. aldar og 1. áratug 21. aldar. Aðeins einn leikari hefur afrekað það sama, Michael Caine.
Nicholson hefur verið tilnefndur 12 sinnum (8 sinnum fyrir aðallhlutverk og 4 sinnum fyrir aukahlutverk). Hann hefur fengið flestar tilnefningar karlleikara í sögu Óskarsins. Hann hefur unnið Óskarinn samtals þrisvar sinnum.
Tilnefndur: Besti leikari í aukahlutverki, Easy Rider (1969)
Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, Five Easy Pieces (1970)
Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, The Last Detail (1973)
Tilnefndur: Besti leikari í aðalhlutverki, Chinatown (1974)