Eyjan sást fyrst þann 21. ágúst1821 frá breska skipinu Eliza Francis sem var í eigu Edwards, Thomas og William Jarvis. Bandaríkin gerðu tilkall til eyjarinnar 1857 og innlimuðu hana formlega árið 1858, en yfirgáfu hana 1879 eftir að hafa numið þar mikið magn af gúanói. Bretland innlimaði eyjuna 1889 en nýtti hana ekki frekar. Bandaríkjamenn tóku eyjuna svo aftur yfir árið 1935.