Líneik Anna Sævarsdóttir (fædd 3. nóvember 1964) er fyrrum alþingismaður sem sat á þingi fyrir Framsóknarflokkinn í Norðausturkjördæmi. Hún náði fyrst kjöri í alþingiskosningunum 2013, var varaþingmaður eftir kosningarnar 2016 en náði aftur kjöri í kosningunum 2017.[1] Líneik gaf ekki kost á sér í alþingiskosningunum 2024.[2]
Líneik er með BS-próf í líffræði frá Háskóla Íslands og próf í uppeldis- og kennslufræði frá sama skóla. Fyrir setu á Alþingi starfaði hún við kennslu og rannsóknir og sat í sveitarstjórnum Búðahrepps og síðar Austurbyggðar frá 1998 til 2006.[1]