Birgir Ármannsson (BÁ) Núverandi
Tók við embætti 1. desember 2021 Forveri Steingrímur J. Sigfússon
Fæddur 12. júní 1968 (1968-06-12 ) (56 ára)
ReykjavíkStjórnmálaflokkur Sjálfstæðisflokkurinn Æviágrip á vef Alþingis
Birgir Ármannsson (fæddur 12. júní 1968 ) er lögfræðingur útskrifaður frá Háskóla Íslands og alþingismaður í Reykjavíkurkjördæmi suður frá 2003 -2013 , frá 2013-2021 í Reykjavíkurkjördæmi norður og aftur í Reykjavíkurkjördæmi suður frá 2021 fyrir Sjálfstæðisflokkinn . Hann var Forseti Alþingis frá 2021 til 2024.
Birgir er sonur Ármanns Sveinssonar (f. 1946 , d. 1968 ) laganema og Helgu Kjaran (f. 1947 ) grunnskólakennara. Stjúpfaðir hans er Ólafur Sigurðsson verkfræðingur (f. 1946 ). Birgir heitir í höfuðið á móðurafa sínum Birgi Kjaran alþingismanni , sem einnig sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn .
Kona Birgis er Ragnhildur Hjördís Lövdahl (f. 1. maí 1971 ) og eiga þau dæturnar Ernu (f. 29. mars 2003 ), Helgu Kjaran (f. 24. ágúst 2005 ) og Hildi (f. 14. janúar 2010 ).
Birgir varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1988 og lauk embættisprófi í lögfræði í HÍ árið 1996 . Árið 1999 fékk hann leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi , en stundaði síðan framhaldsnám við King's College í Lundúnum 1999-2000. Á árunum 1988 til 1994 var hann blaðamaður á Morgunblaðinu í námshléum og samhliða námi, en hóf störf hjá Verslunarráði Íslands (síðar nefnt Viðskiptaráð Íslands ) haustið 1995 . Hann var lögfræðingur ráðsins 1996- 1998 , skrifstofustjóri 1998- 1999 og aðstoðarframkvæmdastjóri 2000- 2003 . Vorið 2003 var hann í nokkra mánuði starfandi framkvæmdastjóri ráðsins.
Birgir tók frá unga aldri þátt í félagsstarfi og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstöðum. Í Menntaskólanum í Reykjavík var hann t.d. formaður beggja nemendafélaganna - forseti Framtíðarinnar 1985- 1986 og inspector scholae 1987- 1988 . Hann var auk þess í sigurliði MR í Spurningakeppni framhaldsskólanna árið 1988 . Eftir stúdentspróf hafa félagsmálastörf hans fyrst og fremst tengst stjórnmálum á hægri vængnum. Hann var formaður Heimdallar , félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík , 1989- 1991 og í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1991- 1993 og 1995- 1997 . Á háskólaárunum sat hann í stjórn Vöku og sat auk þess í Stúdentaráði Háskóla Íslands 1989- 1991 . Hann var stjórnarmaður í Varðbergi , félagi ungra áhugamanna um vestræna samvinnu, 1993- 1998 , og gegndi síðan formennsku í félaginu 1998- 2000 . Birgir sat um nokkurra ára skeið í umhverfismálaráði Reykjavíkur og var fulltrúi Reykjavíkurborgar í skólanefndum Menntaskólans í Reykjavík og Fjölbrautaskólans við Ármúla . Þá var hann í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík tvívegis um tveggja ára skeið auk þess sem hann var kjörinn af landsfundi í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins í tíu ár, frá 1993 til 2003 . Hann hefur verið í stjórn ICEPRO , nefndar um rafræn viðskipti, fyrst 1998- 1999 og aftur frá 2002 , í stjórn EAN á Íslandi 2003- 2004 og í stjórn Fjárfestingarstofu 2003- 2005 .
Vorið 2003 var Birgir kjörinn á Alþingi . Hann var 6. varaforseti þingsins 2003- 2005 en 3. varaforseti frá 2005 . Hann hefur setið í allsherjarnefnd og efnahags- og viðskiptanefnd frá 2003 og í kjörbréfanefnd og sérnefnd um stjórnarskrármál frá 2005. Hann var formaður allsherjarnefndar 2007-2009, formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins 2003- 2005 og formaður Vestnorræna ráðsins 2004– 2005 og var formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins 2005-2009. Í Þingvallanefnd 2013–2017. Í stjórnarskrárnefnd skipaðri af forsætisráðherra 2005–2007 og 2013–2016. 2. varaforseti Alþingis 2016–2017 og formaður þingflokks sjálfstæðismanna síðan 2017. Árið 2021 var Birgir kosinn forseti alþingis.
Hann ákvað að gefa ekki kost á sér á þing í kosningunum árið 2024. [ 1]
Tenglar
↑ Þetta er ágætur tími til að segja gott í bili RÚV, sótt 26. okt. 2024